Heimasíðan komin í loftið!
|
|
Eftir nokkra vinnu og aðstoð frá góðu fólki er heimasíðan komin í loftið. Okkur finnst skipta mestu máli að hún sé einföld og þægileg og nemendur skólans sem og aðrir geti nálgast nauðsynlegar upplýsingar á einfaldan hátt. Ef það er eitthvað sem ykkur finnst vanta eða eitthvað sem mætti vera einfaldara látið okkur endilega vita c") |
|
|
Fyrsti erlendi þjálfarinn mættur
|
|
Julie Tomkins var hjá okkur núna í enda júlí og þjálfaði keppnispör fyrir átök vetrarins. Julie er væntanleg aftur von bráðar og einnig eigum við von á öðrum gæðaþjálfurum á næstu vikum og mánuðum sem viðbót við þá frábæru kennara sem starfa við skólann. Nánari fréttir af því síðar. |
|
|
Skráning og fyrsti kennsludagur
|
Formleg skráning í dansskólann hefst mánudaginn 20. ágúst. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dansskoli@dansskoliragnars.is eða hafa samband í síma 586-2600 og 860-3995. Einnig hvetjum við fólk til þess að mæta á staðinn og kíkja á nýja húsnæðið og skrá sig í leiðinni. Afgreiðslan er opin alla virka daga frá 17-21 og 10-13 á laugardögum. Fyrsti kennsludagur er mánudagurinn 3. september.
|
|
|
|
Ókeypis lummur, danssýningar o.fl
|
|
Laugardaginn 1. september verðum við með ókeypis lummur, danssýningar og jafnvel línudans til styrktar keppnispörunum okkar í húsnæði dansskólans frá kl. 1-3. Hilmar og Elísabet eru að fara á stóra keppni í London sem heitir International í byrjun október og óskum við þeim góðs gengis. Öll framlög eru frjáls og fara í ferðasjóð keppnispara hjá dansskólanum. |
| |
Greiðslufyrirkomulag |
| Hægt er að ganga frá greiðslu á dansnámskeiðunum með símgreiðslu eða með bankamillifærslu. Bankaupplýsingar 1175-26-3309. Kennitala dansskólans er 680607-0600. Vinsamlegast sendið staðfestingu á millifærslu á dansskoli@dansskoliragnars.is. Afgreiðsla dansskólans er opin frá 17 til 21 alla virka daga og á milli 10 og 13 á laugardögum. |