Börn 2-3 ára - Foreldrar og börn
Þessir tímar eru nýjung og spennandi kostur fyrir foreldra. Foreldrar taka þátt í tímunum og læra þá dansa sem börnin læra. Þetta gerir þeim kleift að dansa við börnin sín heima í stofu bæði til gagns og gamans. Farið verður í helstu barnadansa og einnig kynnt allra fyrstu sporin í almennum samkvæmisdönsum. Áhersla lögð á gleði og að fá tilfinningu fyrir því að hreyfa sig skipulega með tónlist.
Börn 4-5 ára
Fyrir 4-5 ára börn bjóðum við upp á barnadansa í bland við fyrstu sporin í almennum samkvæmisdönsum. Einnig verður farið í einfalda línudansa. Lögð áhersla á að búa til góðan grunn með því að tengja tónlist við skipulagðar hreyfingar. Taktur, tækni, tónlist.
Börn 6 ára og eldri
Aðallega unnið með almenna samkvæmisdansa í bland við aðra skemmtilega dansa. Lögð áhersla á góðan grunn og tækni til þess að gefa þeim tækifæri til þess að geta dansað með öryggi og tilfinningu.
Unglingar
Við bjóðum upp á hressa og skemmtilega tíma í samkvæmisdönsum fyrir unglinga þar sem farið er í almenna samkvæmisdansa í bland við aðra dansa. Lögð áhersla á jákvæðni og jákvæða uppbyggingu.
Freestyle
Freestyle verður í boði fyrir aldurshópa 8 ára og eldri. Búnir verða til dansar við nýjustu og vinsælustu lögin.
Fullorðnir - samkvæmisdansar
Farið verður í fyrstu sporin í nokkrum almennum samkvæmisdönsum t.d. cha cha, jive, samba, enskum valsi, foxtrot og tango. Einnig verður bryddað upp á nokkrum línudönsum, gömlum dönsum, salsa og swingi. Farið verður vel í grunnatriði þess að geta dansað með öryggi og tilfinningu, svo sem tækni, takt og stjórnun. Meiri áhersla lögð á gæði en magn.
Salsa
Allir vilja læra salsa. Suðræn tónlistin og stemmningin gerir salsa einn af vinsælustu dönsum í heimi. Sporin eru einföld og mikil áhersla lögð á að dansa og dansa og dansa.
Línudansar
Línudansar eru holl og góð hreyfing og alveg ótrúlega skemmtilegir. Línudansar eru dansaðir við hin ýmsu lög og ef kennarinn er í stuði þá er jafnvel hægt að búa til nýjan línudans á staðnum. Skelltu þér!
Sérhópar
Eitt af því sem dansskólinn býður upp á eru sérsniðin námskeið fyrir vinnustaðahópa, saumaklúbba eða aðra hópa. Afhverju ekki að hafa samband og við setjum upp styttra eða lengra námskeið sérnsiðið fyrir ykkur. Til dæmis væri hægt að hafa nokkra tíma á föstudags- eða laugardagseftirmiðdegi og enda svo námskeiðið á partýi eða balli um kvöldið. Við reynum eftir fremsta megni að verða við öllum séróskum.
Brúðarvals
Þeir sem hafa gift sig vita hvað það er mikilvægt að geta sýnt öryggi og tilfinningu þegar brúðarvalsinn er dansaður. Við bjóðum upp á einkatíma fyrir brúðarvalsinn og einnig er hægt að taka 1-2 aðra dansa sem þá er hægt að dansa í veislunni um kvöldið. Á aðeins nokkrum tímum er hægt að setja saman atriði sem passar við uppáhaldslagið ykkar. Lagið byrjar, brúðguminn leiðir brúðina inn á gólfið og lætur hana ganga einn hring í kringum sig til þess að sýna kjólinn. Ástfangin og samtaka munið þið líða um gólfið í takt við ljúfa tóna. Það er fátt yndislegra en að sjá fallegan brúðarvals.
Einkatímar - Aukatímar
Við bjóðum upp á einkatíma fyrir pör og einstaklinga fyrir öll tækifæri. Hvort sem þú ert að fara að keppa á Íslandsmeistaramóti eða vilt bara vera öruggari á byrjendasporunum þá getum við aðstoðað.