Dans fyrir alla!

Aftur á forsíðu

Starfsfólk

 
Ragnar Sverrisson

Ragnar Sverrisson

Ragnar hefur 25 ára reynslu af samkvæmisdönsum og öðrum dönsum. Margfaldur Íslandsmeistari á sínum unglingsárum og langan keppnisferil bæði sem áhugamaður og atvinnumaður. Ragnar hefur 14 ára reynslu sem danskennari. Hann kenndi á árunum 1993-1994 hjá Dansskóla Hermanns Ragnars, 1994-1996 hjá Dansskóla Auðar Haralds, 1997-1999 hjá Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar og frá 2000-2003 hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Frá 2003 hefur hann starfað sjálfstætt við danskennslu bæði hérlendis og erlendis.
 
Bryndís Eva Sverrisdóttir

Bryndís Eva Sverrisdóttir

Bryndís hefur góða reynslu í samkvæmisdönsum. Bryndís varð meðal annars Íslandsmeistari árið 1994 í flokki fullorðinna með grunnaðferð. Bryndís mun aðstoða við kennslu og annað í vetur eftir fremsta megni.
 
Elísabet Halldórsdóttir

Elísabet Halldórsdóttir

Elísabet hefur verið í dansi frá því hún var 5 ára gömul. Hún mun aðstoða reglulega við kennslu í barnahópum samhliða því að æfa stíft fyrir dansmót vetrarins.
 
Hilmar Steinn Gunnarsson

Hilmar Steinn Gunnarsson

Hilmar Steinn er dansherra Elísabetar. Þau hafa dansað saman í 5 ár og náð góðum árangri. Hilmar mun aðstoða í barnahópum til móts við Elísabetu.
 
Kristín Inga Arnardóttir

Kristín Inga Arnardóttir

Kristín er menntaður viðskiptafræðingur. Kristín mun sjá um að aðstoða við kennslu og annað tilfallandi.
Erlendir gestakennarar munu einnig láta sjá sig af og til í vetur og þar má helst nefna Julie Tomkins frá Englandi en Julie er okkur vel kunnug og hefur oft komið til Íslands til þess að þjálfa bæði danspör og kennara.
Paul Holmes frá Englandi hefur einnig komið áður til Íslands. Paul átti mjög góðan keppnisferil en einbeitir sér nú að þjálfun. Paul er búsettur í Bandaríkjunum og hefur getið sér gott orð bæði sem þjálfari og dómari.
Ieva Pauksena frá Bandaríkjunum var við það að komast inn í úrslit í Professional Ballroom í Blackpool í vor og er það mikill fengur fyrir okkur að fá hana til okkar.
Gunnar og Daryll Sverrisson frá Bandaríkjunum verða vonandi Bandaríkjameistarar í 9 dönsum American style í Florida núna í byrjun september. Gunnar er bróðir Ragnars og hefur átt langan og góðan keppnisferil ásamt því að eiga og reka dansskóla í Connecticut í Bandaríkjunum þar sem hann er búsettur.
Nánar fréttir síðar.
Dansskóli Ragnars Sverrissonar - Bildshöfða 18 - 110 Reykjavík - S: 586-2600 - dansskoli@dansskoliragnars.is