Logo

Dans fyrir alla!

Rendur
Aftur á forsíðu

Námskeið

 

 

Fullorðnir

Farið verður í fyrstu sporin í nokkrum samkvæmisdönsum t.d. cha cha, swing, rumbu, enskum valsi, foxtrot og tango.  Einnig verður bryddað upp á gömlum dönsum og salsa.  Farið verður vel í grunnatriði þess að geta dansað með öryggi og tilfinningu svo sem tækni, takt og stjórnun.  Meiri áhersla lögð á gæði en magn.

Börn 2-3 ára

Foreldrar og börn - Dansskóli Ragnars er frumkvöðull með þessa tíma og finnst okkur þetta vera spennandi kostur fyrir foreldra þar sem þeir dansa við börnin sín í tímunum og læra þá dansa sem barnið lærir og geta þá dansað við barnið heima í stofu sem bæði þjálfar barnið og veitir því gleði.  Farið verður í helstu barnadansa og dansleiki.  Áhersla lögð á gleði og að fá tilfinningu fyrir því að hreyfa sig skipulega með tónlist. 

Börn 4-5 ára

Fyrir 4-5 ára börn þá bjóðum við upp á almenna barnadansa í bland við fyrstu sporin í almennum samkvæmisdönsum. Lögð áhersla á að búa til góðan grunn með því að tengja tónlist við skipulagðar hreyfingar.  Taktur, tækni, tónlist.

Börn 6 ára og eldri

Aðallega unnið með almenna samkvæmisdansa í bland við aðra skemmtilega dansa.  Lögð áhersla á góðan grunn og tækni til þess að gefa þeim tækifæri til þess að geta dansað með öryggi og tilfinningu.

Unglingar

Við bjóðum upp á hressa og skemmtilega tíma í samkvæmisdönsum fyrir unglinga þar sem farið er í almenna samkvæmisdansa.  Lögð áhersla á jákvæðni og jákvæða uppbyggingu.

Michael Jackson dansar

Aðalsteinn Kjartansson mun kenna áhugasömum Michael Jackson dansa hjá okkur. MJ dansarnir eru bæði fyrir stráka og stelpur.

Freestyle

Freestyle verður í boði fyrir aldurshópa frá 10-13 ára .  Búnir verða til dansar við nýjustu og vinsælustu lögin. Einnig gerðar tækniæfingar og teygjur.

Salsa

Allir vilja læra salsa.  Suðræn tónlistin og stemmningin gerir salsa einn af vinsælustu dönsum í heimi.  Sporin eru einföld og mikil áhersla lögð á að dansa og dansa og dansa

Breik

Breik er skemmtilegt bæði fyrir stráka og stelpur. Töff tónlist og töff hreyfingar.

Sérhópar

Eitt af því sem dansskólinn býður upp á eru sérsniðin námskeið fyrir vinnustaðahópa sem og aðra hópa. Afhverju ekki að hafa samband og við setjum upp styttra eða lengra námskeið.  Við reynum eftir fremsta megni að mæta séróskum.

Brúðarvals

Þeir sem hafa gift sig vita hvað það er mikilvægt að geta sýnt öryggi og tilfinningu þegar brúðarvalsinn er dansaður.  Bjóðum upp á einkatíma fyrir brúðarvalsinn og einnig er hægt að taka 1-2 aðra dansa sem þá er hægt að dansa í veislunni þegar fjörið færist yfir.  Brúðarvalsinn er næstum eins mikilvægur og athöfnin sjálf.  Á aðeins nokkrum tímum er hægt að setja saman atriði sem passar við uppáhaldslagið ykkar. Ástfangin og samtaka munu þið líða um gólfið í takt við ljúfa tóna.  Það er fátt yndislegra en að sjá fallegan brúðarvals.

Einkatímar

Bjóðum upp á einkatíma fyrir pör og einstaklinga fyrir öll tækifæri.  Hvort sem þú ert að fara að keppa á Íslandsmeistaramóti eða bara vilt vera öruggari á byrjendasporunum þá getum við aðstoðað.

 

 

 

 

 

Dansskóli Ragnars Sverrissonar - Bildshöfða 18 - 110 Reykjavík - S: 586-2600 - dansskoli@dansskoliragnars.is