Logo

Dans fyrir alla!

Rendur
Aftur á forsíðu

Starfsfólk

 
 

Ragnar Sverrisson

Ragnar hefur 28 ára reynslu af samkvæmisdönsum og öðrum dönsum. Margfaldur Íslandsmeistari á sínum unglingsárum og á langan keppnisferil að baki bæði sem áhugamaður og atvinnumaður. Ragnar hefur 17 ára reynslu sem danskennari. Hann kenndi á árunum 1993-1994 hjá Dansskóla Hermanns Ragnars, 1994-1996 hjá Dansskóla Auðar Haralds, 1997-1999 hjá Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar og frá 2000-2003 hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Frá 2003 hefur hann starfað sjálfstætt við danskennslu bæði hérlendis og erlendis.
 
 

 

 
 
 

Linda Heiðarsdóttir

Linda átti langan keppnisferil í samkvæmisdönsum og náði góðum árangri. Linda mun koma að almennri kennslu hjá okkur. Linda er nú orðin meðeigandi að dansskólanum og óskum við henni til hamingju með það. Linda er menntaður grunnskólakennari og það er vert að nefna að hún fékk íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2010.

 
 

Jónsi og Albina

Jónsi og Albina munu aðstoða við kennslu í vetur ásamt því að undirbúa sig fyrir keppnir vetrarins.

 
 

Kristín Inga Arnardóttir

Kristín er einn af eigendum dansskólans. Kristín mun sjá að mestu um barnakennsluna með góðri aðstoð frá keppniskrökkum dansskólans.

 

Sædís

Sædís hefur komið sterk inn í freestyle kennsluna núna í vetur. Hún hefur mikinn metnað og áhuga. Sædís stundar listdansnám við listdansnámsbraut JSB.

 
   
 

Birta Sif Arnardóttir, Mikael Uni Karlsson Brune og Jóna Rán Pétursdóttir munu aðstoða við barnakennslu í vetur.

Erlendir gestakennarar munu einnig láta sjá sig af og til í vetur og þar má helst nefna Julie Tomkins frá Englandi en Julie er okkur vel kunnug og hefur oft komið til Íslands til þess að þjálfa bæði danspör og kennara.

Gunnar Hrafn Gunnarsson og Ásta Sigvaldadóttir eru einu íslendingarnir sem búa og starfa erlendis sem samkvæmisdansarar í hæsta gæðaflokki. Þau munu verða gestakennarar dansskólans í vetur eins og síðasta vetur.

 
Dansskóli Ragnars Sverrissonar - Bildshöfða 18 - 110 Reykjavík - S: 586-2600 - dansskoli@dansskoliragnars.is