Dansskóli Ragnars Sverrissonar var stofnaður í júní 2007 af Ragnari Sverrissyni og Kristínu Ingu Arnardóttur. Sumarið 2010 bættist svo Linda Heiðarsdóttir í eigendahópinn.
Markmiðið dansskólans með þessu er að tryggja áframhaldandi uppgang og styrk Dansskóla Ragnars Sverrissonar með því að fá inn sterka áhugasama aðila sem meðeigendur.
Dansskólinn er staðsettur á Bíldshöfða 18 í Reykjavík í næsta húsi við Húsgagnahöllina. Dansskólinn er öllum opinn og ættu allir að geta fundið námskeið við sitt hæfi. Boðið er upp á almenna samkvæmisdansa, barnadansa, brúðarvals, freestyle dansa, breik og fleira. Starfsfólk dansskólans hefur mikinn metnað fyrir hönd dansskólans og leggur upp með að veita fyrsta flokks þjónustu fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.
|